En gaman að sjá ykkur. Ég heiti Víkingur og ég er algjör grallari.


Um mig:



Ég fæddist á Landspítalanum þann 10 nóv. 2005 kl. 16.51. Ég var tekinn með keisaraskurði eftir 42 vikna meðgöngu, vegna þess að ég var í sitjandi stöðu. Mér tókst heldur betur að plata fólk því allir héldu að ég væri skorðaður fyrir löngu, læknarnir og ljósmæðurnar rugluðust bara á rass og haus en það getur gerst fyrir besta fólk enda ekki nema von ég var með rosalega stóran kúlurass :) Það uppgötvaðist fyrir tilviljun að ég var í sitjandi stöðu og á Ester Ósk ljósmóðir heiðurinn af því, og erum við henni mjög þakklát.
Ég kom öllum á óvart og var heilar 18 merkur eða 4540 grömm þegar ég fæddist og a.m.k. 56 cm (það var mjög erfitt að mæla mig þar sem ég var alveg í keng eftir þrengslin í mömmu), semsagt algjör lengja og upprennandi körfuboltastjarna eins og starfsfólkið á skurðstofunni sagði þegar ég kom í heiminn.
Augun mín eru blágrá eins og hjá foreldrum mínum og ég fæddist með mikið og dökkt hár og sítt að aftan.
Foreldrar mínir heita Hafdís Helgadóttir og Sigurður Hjartarson og ég er frumburður þeirra.
Ég var skírður Víkingur í Seltjarnarneskirkju þann 8. janúar. Nafnið Víkingur er alveg út í loftið og foreldunum fannst það passa ljómandi vel við mig.

Bloggið hennar mömmu











SPORÐDREKINN

24. október - 21. nóvember



Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.




BÖRN VINA OG KUNNINGJA MÖMMU OG PABBA

Björg Malena

Daníel Hugi og Birta Dís

Embla Ray

Gabríel Snær

Hanna María

Hekla Maren og Kristey Bríet

Ingunn Anna

Ísak og Ísabella

Júlíana

Rakel Ósk og Viktor Freyr

Skarphéðinn Haukur og Sara Kristín


FRÆNDFÓLK

Áróra Ísól

Borgarhólsprinsinn

Dagur Árni

Elín Björt

Natalía Hrund

Vigdís Elva

Þorbjörn Egill


MÖMMUKLÚBBUR VINNUNNAR HENNAR MÖMMU

Aron

Heiðrún Sunna

Hilmir Bjarki

Karólína Huld og Gummi



Þú ert gestur nr. 10514